11.9.2009 | 19:20
Foræðishyggja af verstu gerð.
Fólk á að fá að reykja ef það vill og þetta er ekkert nema foræðishyggja til að reyna að hafa vit fyrir fólki.
Sambandi við lækniskostnað þá þætti mér gaman að vita hvort sparnaður ríkisins útaf því að reykingafólk deyr að meðaltali yngra en þeir sem ekki reykja hafi verið tekið með i þessum útreikningum.
Það er persónulegt val fólks að reykja og það er þeirra mál og kemur Þessum læknum ekkert.
|
Tóbak verði tekið úr almennri sölu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Heimspeki | Breytt 24.9.2009 kl. 18:57 | Facebook


hallarut
jensgud
rannveigh
helgadora
hist
svarthamar
ommi
huldumenn
veravakandi
ksh
bjornbondi99
scorpio
svanurg
nordurljos1
disdis
roslin
ma
siggith
gattin
ragnar73
gudruntora
sillagunna
brahim
Athugasemdir
Sparnaður segiru, hvað með tapaðar skatttekjur til ríkisins eða tapaða vinnu einstaklingsins?
YggY (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 19:30
Þetta er bara rugl. Þá myndi þetta frekar verða Innflutt.
DJ Danni (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 19:38
það er mikið hagstæðara fyrir ríkið að fólk lifi framyfir 70 ára aldurinn og látist úr hjartaáfalli eða blóðtappa...
það einstaklingur fái lungnaþembu, krabbamein og aðra reykingasjúkdóma og lifi inni á spítala í 5-10 ár er allt of dýrt.
kostnaðurinn við að halda einum krabbameinssjúklingi lifandi frá því að krabbamein greinist og þangað til að viðkomandi fellur frá er svipaður og kostar að reka Alþingi í ár.
og svo eru auðvitað hundruð einstaklinga á ári sem látast úr krabbameini þannig að það væri sennilega hægt að borga Icesave með þeim sparnaði sem næðist með algjöru banni við tóbaki á Íslandi.
Daníel Sigurðsson, 11.9.2009 kl. 19:46
Það er ekki verið að tala um að bann areykingar. Bara að banna búðum að selja tóbak. Hugsaðu þér ef þú finndir nú sjaldgæfa plöntu sem framleiddi jafn bráðdrepandi efni og nikótín, fyndir upp sérstakan búnað til að fólk gæti tekið inn eitrið úr plöntunni þinni. Heldurðu að þú fengir leyfi til að selja slíkt í búðum??
Tóbaksiðnaðurinn talar sjálfur um sígarettur sem "nicotine delivery devices".
Skeggi Skaftason, 11.9.2009 kl. 19:47
Fólk fær krabba af öðrum ástæðum heldur en reykingum
Adalsteinn Egill (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 19:55
Eitt sem ég vil vita sambandi við þessa útreikninga er, þegar þessir góðu menn segja að 80% af þeim sem koma í hjartaþræðingu reykja eða hafa reykt. Er reikningnum frá ollum þessum aðgerðum skellt á kostnað vegna reykinga. Ef svo er verðum við ekki að spyrja okkur, eru þetta vísindi?
Er kominn svo með uppí háls af því hvernig menn búa til tölfræði til þess að þvinga pöpulinn til breytinga sem það vill koma fram. Hvað haldiði til dæmis að hlutir tengdir áfengisneyslu þjóðarinnar kosti held að flestir séu nokkuð sammála um það myndi aldrei ganga, væri ekki réttara fyrir þessa forsjárhyggjupésa að reikna það?
Banna allt er það svarið að eilífri hamingju fyrir allra?
Björn (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 19:56
Hangikjöt er krabbameinsvaldandi - bönnum það líka! Og vatn; það er bráðdrepandi!
Skorrdal (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 20:09
Það er verið að tala um kostnað samfélagsins vegna reykingafólks.
Hefur ekki pakkinn hækkað úr 220 krónum og upp í 860 krónur á 10 árum. Eitthvað kemur nú í ríkiskassann úr því.
Einnig, borgar reykingafólk ekki skatta?
Svo mikil rökleysa í gangi í þessari umræðu að hálfa væri nóg.
forræðishyggjan og fanatíkin er algjör, að reyna að banna fullorðnu fólki að reykja, banna að selja þetta í verslunum og gera fólki erfiðara fyrir að nálgast vöruna.
Er ekki nóg að það sé búið að banna þetta allstaðar og þetta sé falið, í verslunum og sjoppum. Þannig að þeir sem reykja ekki þurfa aldrei að sjá þessa vöru.
Það er ekki nóg, nú þarf að banna þetta.
Að reyna að hafa vit fyrir öðrum. Hvað gengur þessu fólki eiginlega til.
Þetta er ótrúlegt.
AceR, 11.9.2009 kl. 20:27
Er ekki nóg að það sé búið að banna reykingar allstaðar.
Átti að standa þarna.
AceR, 11.9.2009 kl. 20:29
Einu sinni sá ég íslenska skýrslu um það að íþróttafólk kostaði heilbrigðiskerfið mun meira en reykingafólk en þessu er auðvitað ekkert haldið á lofti.
GH (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 20:32
Reykingaáhangendur nöldruðu nú líka þegar reykingar voru bannaðar frá skemmtistöðum. Nú er það bann búið að halda ágætlega og almenningur ánægðu.
Ég spái því að reyndar að neðanjarðarmarkaðurinn færist meira úr núverandi ólöglegum eiturlyfjum yfir í núverandi löglegt eiturlyf, rettuna. Þannig að reykingar eiga ekkert eftir að hverfa.
Gísli Friðrik Ágústsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 20:42
Dæmið hefur verið reiknað saman og reykingamenn kosta heilbrigðisgeirann minni pening en þeir sem lifa heilbrigðum lífstíl.
http://www.startribune.com/lifestyle/health/15293006.html
garri (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 20:44
Garri!!!
það er líka búið að ransaka það í þaula og reykna út að meðal maður gerir no 2 að meðaltali 3x á dag, en það er ekki tekið með í summuna að þú getur líka verið með DRULLU.
nafni Friðrik. mér fannst það gott mál að reykinga voru bannaðar á skemmtistöðum og ekki bitnaði það á mér þar sem að skemmta sér er eitt dýrasta og hættulegasta hobby sem þú stundar.
Gisli (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 20:54
Yggy. Það er tap en það vinnst upp þegar aðili deyr enda þarf þá ekki að borga ýmsa öldrunarþjónustu.
DJ Danny. Ef þetta væri bannað þá væri tóbaki bara smyglað og þá værum við að gefa mönnum eins og Al Capone vinnu.
Daníel Sigurðsson. Það er hægt að deila um hversu mikla dýra læknisþjónustu má veita og ég tel að það megi skerða hana verulega til að minnka skattbyrði. Það þó fólk lifi 1-2árum skemur að meðaltali skiptir ekki það miklu máli.
Skeggi. Það er margt sem er leyft í dag sem væri bannað ef það væri verið að finna það upp í dag og á það við um Tóbak og ýmislegt annað.Áhugaverður linkur hjá þér.
Aðalsteinn. Það eru tilmargar gerðir að krabba og margar mismunandi orsakir og erfðir geta líka orsakað krabba.
Björn. Ég er hræddur um að þeir hafa gert ýmislegt til að þessi tala væri eins há og mögulegt væri hægt að hafa hana. Það er lítið að marka þessa tölfræði þeirra enda hægt að fá þá niðurstöðu sem þér hentar. Það eru ótrúlega margir sem halda að hægt sé að leysa ýmis mál með að banna hluti en fatta ekki að fólk brýtur Þá bara lögin eða fer í kringum bönin.
Hannes, 11.9.2009 kl. 21:28
Skorrdal. Allt reykt kjöt er krabbameinsvaldandi og grillkjöt.
Acer. þegar eitt hefur verið bannað þá vill fólkið sem vill hafa vit fyrir öðrum alltaf ganga lengra og lengra til þess. Fólk á að fá að velja fyrir sig sjálft.
GH. Íþróttameiðsl kosta mikinn pening á hverju ári og ekki er settur sérstakur skattur á íþróttamenn. Gaman væri að vita hvað íþróttatengd slys kosta á ári.
Gísli Friðrik. Ég hef minnkað það verulega að fara á skemmtistaði eða bari útaf því að ég má ekki taka vindilinn með. Það eru margir óánægðir og margir ánægðir.
Garri. Ég gætti vel trúað að þetta sé rétt enda deyjum við fyrr og hvert ár þegar menn eru komnir á ellilífeyri kostar mikinn pening.
Gísli. Áhugavert að vita að meðal maður gerir það að meðaltali 2 á dag. Stór hluti þeirra sem ég veit um sem eru ánægðir með reykingabannið á skemmtistöðum nota þá ekki og það er spurning hvort bannið skipti þá einhverju máli eða ekki.
Hannes, 11.9.2009 kl. 21:39
Fáðu þér vindling og grjóthaltu svo kjafti
Ómar Ingi, 11.9.2009 kl. 22:25
Það er ljótt að reykja!
En líka smá töff.
Brúnkolla (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 23:53
Ómar. Ég er að fara að kveikja í einum núna. Ég held að þér veiti ekki af því að fá þér einn.
Brúnkolla. Það er fallegt að reykja góðan vindill.
Hannes, 12.9.2009 kl. 01:24
Það er enginn að tala um að banna tóbak. Einungis að taka það úr almennri sölu. Þá erum við að tala um að varan fer í flokk með áfengi, selt í sérstökum verslunum.
Páll Geir Bjarnason, 12.9.2009 kl. 01:25
Daníel: (það einstaklingur fái lungnaþembu, krabbamein og aðra reykingasjúkdóma og lifi inni á spítala í 5-10 ár er allt of dýrt. ) Gerum bara eins og Kínverjar gera með þá seku...út á tún og skjótum það í hnakkan. Case closed. Ekkert að vera að púkka upp á fólk á stofnunum. Ein kúla í hnakkann,og mikill sparnaður. Vona að engin reyki sem þú þekkir.
brahim, 12.9.2009 kl. 02:55
Allavega hér eru nöfninn á fólkinu í þessari tókbaksnefnd
http://www.lis.is/Groups/Info.aspx?ID=101
Friðrik Páll Jónsson
Kristinn Tómasson
Valgerður Á. Rúnarsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir (formaður)
Kristinn Tómasson
Friðrik E. Yngvason
Alexander Kristófer Gústafsson, 12.9.2009 kl. 13:06
13:00 Þingsetning: Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands.
Kosning fundarstjóra
Ávarp: Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra
13:15-13:45 Reykingatengdir sjúkdómar, einn faraldur, allar sérgreinar læknisfræðinnar.
13:45-14:00 Tóbaksfíkn: Valgerður Rúnarsdóttir, læknir.
14:00-14:15 Hagfræði tóbaksnotkunar: Kristín Þorbjörnsdóttir, hagfræðingur.
14:15-14:30 Lyfja- og eiturefnafræði tóbaks: Magnús Jóhannsson, prófessor.
14:30-14:45 Reykingar, faraldur eða frjálst val?: Ástríður Stefánsdóttir, læknir og siðfræðingur.
14:45-15:00 Kaffihlé.
15:00-16:30 Vinnuhópar
16:30-17:00 Forsvarsmenn vinnuhópa kynna ályktanir þeirra.
17:00 Tóbaksvarnaþingi slitið. Kristján G.Guðmundsson, læknir.
Ég er búinn að hafa samband við sumt af þessu fólki og fæ engin svör um hverjr kusu já eða nei Lýðræði á Íslandi my ass. Ég hvet alla til að hafa samband við þetta fólk og krefjast upplýsinga eins og að gerast í eðilegum lýðræðisríkkjum!
Alexander Kristófer Gústafsson, 12.9.2009 kl. 13:44
Páll. Það er verið að tala um að gera fólki erfiðara að ná í tóbak og gera fólki þar með erfiðara um vik að ná í það sem er næsta sem þú kemst því að banna vöru án þess að gera það.
Brahim. Það er öruggt að hann þekkir einhvern sem reykir miðað við þann fjölda sem reykir í dag.
Alexander. Tak fyrir þennan lista verður gaman að fylgjast með þessu einstaklingum á næstunni. Ég er nokkuð viss um að þetta fólk þori ekki rökstyðja sína skoðun opinberlega.
Hannes, 12.9.2009 kl. 18:42
Talað er um að kostnaður vegna veikinda reykingafólks sé 20 millur á ári. Inn í þann reikning vantar að reykingafólk borgar miklu hærri upphæðir á ári í formi álagningar ríkisins á tóbaki. Ég veit ekki hverjar álagningar ríkisins á tóbak eru á hvern sígarettupakka. Bara virðisaukaskatturinn er hátt í 200 kall. Önnur gjöld ríkisins eru áreiðanlega annað eins eða meira.
Allir reykingamenn sem ég þekki drekka einnig áfengi. Og reykja aldrei meira en þegar menn eru í glasi. Gjöld ríkisins á áfengi eru hlutfallslega miklu hærri á áfengi en tóbak. Þegar allt er tekið með í dæmið eru reykingamenn væn tekjulind fyrir ríkið. Við höldum í raun ríkissjóði uppi. Og veitir ekki af á þessum tímum þegar ríkissjóður er í klessu. Þar fyrir utan er gott og gaman að reykja.
Jens Guð, 12.9.2009 kl. 21:22
Jens. Ekki má gleyma að taka sparnað lífeyrissjóða með þegar reykingamenn deyja fyrir aldur fram. Ríkið græðir líka á dauða okkar. Reykingamenn og drykkjumenn eru góð tekjulind.
Það mætti alveg lækka gjöld á áfengi og tóbak.
Hannes, 13.9.2009 kl. 13:26
Er hræddur um að ríkið tapi góðri tekjulind ef þetta næst í gegn, og ekki bara á tóbaki og áfengi, segja má að dauðinn sé það einnig eins og þú nefnir Hannes í síðasta commenti þínu. Lífeyrissjóðsinneign hún hverfur í hít lífeyrissjóða, því ekki erfist sú inneign...þannig að þeir græða á "langlífi" drykkju og reykingamannsins rétt eins og ríkið, innflutningsaðilar og fl.
brahim, 13.9.2009 kl. 13:51
Brahim. Ríkið mun stórtapa á þessu banni til lengri tíma litið. Lífeyrissjóðirnir eru mestu þjófar sem til eru.
Þú vest að ef öryrki vinnur fyrir sér þá þarf hann að borga í leyfaeyrissjóð eins og allir aðrir en á ekki rétt á sjúkradagpening og örorkubótum ef hann missir þá starfsorku sem hann hefur þó hann hafi getað unnið eitthvað áratugum saman.
Hannes, 13.9.2009 kl. 15:14
Þetta er rétt hjá þér Hannes...maður sem er öryrki en getur kannski unnið létta vinnu 4 tíma á dag...hann fær ekki sjúkradagpeninga ef hann veikist eða slasast vegna þessarar litlu vinnu sem hann hugsanlega er í. Öryrkjar hafa það svo gott að ekki er meiru á bætandi...hann gæti farið að bruðla með peninginn...með því að taka upp á þeim ósóma að kaupa sér föt...endurnýja eldhústæki...kaupa áskrift að stöð2 eða eitthvað til að gæða lífinu smá lit. Alger óþarfi að við öryrkjar fáum að lifa eins mannsæmandi lífi og þeir sem fulla heilsu hafa. Þvílík heimtufrekja.
brahim, 13.9.2009 kl. 15:28
Brahim. Það er allt gert til að refsa öryrkjum ef þeir vilja gera eitthvað til að bæta sinn hag með skerðingum og ýmsu öðru.
Hannes, 13.9.2009 kl. 22:10
Er ekki næst að banna þér að reykja í bílnum þínum !.
Ómar Ingi, 25.9.2009 kl. 11:46
gerum eins og Italar og Frakkar sér búðir fyrir sígarettur,en að fela er algjört hallæri.
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 4.10.2009 kl. 14:40
Ómar það eru til einstaklingar sem vilja banna reykingar í bílum og ég vona að það gerist ekki.
Sigurbjörg. Það á bara að leyfa þessu að sjást eins og hverja aðra vöru enda er löglegt að reykja og selja tóbak. Það ætti frekar að fela sælgæti og óhollt snakk og mat enda veldur það meiri skaða en tóbak í dag
Hannes, 5.10.2009 kl. 00:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.