Ég myndi nú frekar segja að þetta væri niðurlægjandi fyrir karlmenn.

Ég myndi nú ekki segja að það sé niðurlægjandi fyrir konur að segja að þær séu það fallegar að þær þurfi á vernd að hald til að verða ekki nauðgað. Ég myndi frekar segja að það væri verið að meina að karlmenn væru svo graðir og með lélega sjálfstjórn að þeir gætu ekki haldið aftur af sér þegar þeir sæju fallega konu og misstu alla sjálfstjórn á staðnum.

Nú eru Íslenskar konur enn fallegri en Ítalskar og þær geta gengið um göturnar án þess að verða nauðgað af því að Íslenskir karlmenn eru með betri sjálfstjórn heldur en Ítalskir að vísu með nokkrum undantekningum.


mbl.is Berlusconi vekur hneykslan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

HEHEHEHE

Ómar Ingi, 25.1.2009 kl. 21:40

2 Smámynd: corvus corax

Íslenskar lopamussukellíngar fallegri en ítalskar konur? Nei, hættu nú öllu gríni!

corvus corax, 25.1.2009 kl. 22:32

3 Smámynd: Hannes

Ómar. Þetta er fyndið.

Curvus. Við erum með margar fallegar hér á landi en allt of margar forljótar Feminista kellingar.

Hannes, 25.1.2009 kl. 23:21

4 Smámynd: Halla Rut

Það sem virðing og kvenréttindi eru meiri þar er minna um nauðganir.

Ekkert má nú segja lengur......

Halla Rut , 26.1.2009 kl. 00:28

5 Smámynd: Hannes

Það kæmi mér að minnsta kosti ekki á óvart að það sé minna um nauðganir eftir því sem kvennaréttindi og virðing eru meiri.

Mér finnst það bara fyndið að fólk tali um þessi orð sem kvenfyrirlitningu. 

Hannes, 26.1.2009 kl. 00:45

6 identicon

Ég er nú nokkuð viss um að engin kona mundi taka þessu sem gullhömrum. Svona hljómar þetta aðeins umorðað: "Vá hvað þú ert falleg. Þú ert nú bara heppin ef þér verður ekki nauðgað".

Held að kallinn hefi nú alveg mátt sleppa þessu.

Þórhildur (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 09:21

7 Smámynd: Hannes

Þórhildur ég er alveg handviss um að ég væri löðrungaður allhressilega ef ég myndi segja það við konu að hún væri svo falleg að hún væri heppin ef sér væri ekki nauðgað enda myndi mér aldrei detta það í hug.

Maðurinn er einstaklega óheppin með orðaval oft á tíðum sem er bara fyndið.

Hannes, 26.1.2009 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband